Tíminn líður hratt.

Vá hvað tíminn liður hratt. Ég ákvað í gær að búa mér til blogg síðu hérna og þegar ég var að nýskrá mig kom í ljós að ég hafði stofnað síðu hérna áður. Þegar ég var búin að fá allar upplýsingar sem mig vantaði og opnaði síðuna þá bara svitnaði ég !!!!! VÁ ÉG VAR MEÐ ÞESSA BLOGGSÍÐU ÁRIÐ 2013. Mest varð mér um hvað mér fannst ég gömul allt í einu þegar ég sá þetta.

Ég ætla að reyna að blogga aftur. Það virðist vera endalaust eitthvað að gerast í kringum mig sem ég get sagt ykkur frá. 

Síðan síðast er ég búin að gifta mig aftur og fékk svo flottan son með maninum mínum svo ég er enn með smá fólk á heimilinu (úff ég er orðin 55 ára). Ég er enn með 2 stráka undir fermingu svo ég á mikið eftir. Stóru strákarnir mínir tveir eru orðinir næstum fullorðnir. Annar er að verða 18 ára og hinn 17 ára. Það er eiginlega smá vandamál varðandi það, þeir eru báðir orðnir mikið stærri en ég !!!! Ég er kölluð DVERGURINN cry

Það er svaka stuð eða þannig að þurfa að kalla LILLI !! GETURÐU HJÁLPAÐ MÉR AÐ NÁ SKÁLINNI ÞARNA UPPI Á SKÁPNUM undecided. Þeim finnnst það sko ekki leiðinlegt. Ég get verið ánægð með að vera stærri en litlu strákarnir ENNÞÁ !!!

Ég ætla að hafa þetta stutt í dag en á morgun ætla ég sko að segja ykkur af hverju mér er svona hrikalega íllt í fótunum. Þeir eru tvöfaldir sko og ég haf ákveðinn mann sem ég get þakkað fyrir það !!! Þið fáið sko að vita það allt á morgun en þetta er auðvitað hann Emil vinur minn sem er búinn að elta mig um allt í rúm 20 ár !!! Ekki nokkur leið að losna við hann.

 

Hlakka til að sitja hérna á kvöldin og segja ykkur sögur af því sem um er að vera. Ég vona að þið hafið smá gaman af þessu og þetta fái ykkur til að brosa smá stundum.

 

Kveðjumt í kvöld 

eigið góðar stundir

Alvilda


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband